Fimleikahringirnir frá Fitco eru afar vandaðir hringir sem hægt er að nota í fjölda styrktaræfinga. Með hringjunum koma strappar sem eru um 4,5 m langir og 3,8 cm breiðir. Strapparnir eru búnir afar sterkum sylgjum sem að passa að þeir renni ekki til á miðri æfingu.
Hringirnir eru 23 cm að þvermáli og 32 mm þykkt á gripinu sjálfu.