






Hér fléttast saman finnsk hönnun og kenískt handverk.
Heillandi fuglar skornir út úr fallinni jakarandatrjágrein. Fallegir í glugga, á jólatréð eða sem pakkaskraut.
Tréfuglar Mifuko eru útskornir á verkstæði Kapya Kitungwa í Naíróbí. Kitungwa er kongóskur flóttamaður en á verkstæðinu hans starfar flóttafólk frá Kongó sem hefur sest að í Naíróbí. Með þessu samstarfi hefur Mifuko tekist að auka stuðning sinn við konur í dreifbýli í Kenýa.