0

Karfan er tóm

Handgerður fugl frá Mifuko - dökkbleikur (2105)

Hér fléttast saman finnsk hönnun og kenískt handverk.

Heillandi fuglar skornir út úr fallinni jakarandatrjágrein. Fallegir í glugga, á jólatréð eða sem pakkaskraut.

Tréfuglar Mifuko eru útskornir á verkstæði Kapya Kitungwa í Naíróbí. Kitungwa er kongóskur  flóttamaður en á verkstæðinu hans starfar flóttafólk frá Kongó sem hefur sest að í Naíróbí. Með þessu samstarfi hefur Mifuko tekist að auka stuðning sinn við konur í dreifbýli í Kenýa.