Útskorinn köngull í hvítum borða

Köngullinn er skorinn út úr fallinni jakarandagrein. Vandað handverk má sjá í útskornu yfirborðinu. Tilvalið skraut í glugga eða á jólatré.

Í gegnum Made51 vinnur Mifuko með Kapya Kitungwa og verkstæði hans til að búa til tréskraut. Kapya er kongóskur flóttamaður og handverksmaður sem býr í Naíróbí í Kenýa. Á verkstæði hans starfa aðrir flóttamenn sem búa á svæðinu.

Allar viðarskreytingar eru hannaðar af Mifuko.

Lengd ca 9 cm.