0

    Karfan er tóm

    Bleika sápan frá URÐ

    Bleika sápan frá URÐ er náttúruleg og inniheldur hreinar ilmolíur, lavender og greip. Hver sápa er handgerð úr íslenskri repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri. Sápurnar eru mótaðar eins og fjöll með dökkum toppi og er hver sápa einstök í útliti. Útlit sápanna minnir á konubrjóst en á umbúðunum má finna upplýsingar um brjóstakrabbamein. 

    Af hverri seldri sápu renna 600 krónur til Bleiku slaufunnar. 

    Markmiðið með sölu á sápunni er að fræða og vekja fólk til umhugsunar og um leið styrkja Bleiku slaufuna. 

    Við vonumst til að Bleika sápan, sem gengur undir nafninu Brjóstvit, veki konur til umhugsunar um mikilvægi þess að þreifa og fylgjast reglulega með brjóstum sínum.