Hönnuðir slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý, hönnuður, og Jökull Jónsson, arkitekt. Saman reka þau hönnunarstofunaStudio Pluto. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.
Bleikur október 2025 var áhrifamikill í lífi þeirra þegar Tanja greindist með brjóstakrabbamein. Hún var þá 36 ára með ársgamalt barn þeirra á brjósti.
Slaufan er tákn sem fólk getur speglað sig í; hvort sem það hefur sjálft greinst, er aðstandandi eða vill einfaldlega sýna málefninu stuðning.
Sparislaufan 2026 er stílhreint,gullhúðað koparhálsmen ísamlitri keðju.Fremri borði slaufunnarerspegilslétturog táknar tímabilið fyrir greininguna, en aftariborðinnerhrjúfur og táknar tímabilið eftir greininguna ogþæráskoranir sem fylgja því. Sprungan táknar rofið sem verður á lífinu og þrír dökkbleikirSwarovski steinar fegra sprunguna sem tákn um von, styrk og samstöðu.
Þau sóttu innblástur í japanska aðferð sem kallastKintsugi þar sem brotnir hlutir eru límdir saman með gulli til að heiðra brotin, ekki til að fela þau heldur sýna þau. Brotin segja sögu hlutarins og hann er talinn ekkert síður fallegur þótt að brotin sjáist.